Ábyrgar fjárfestingar
A/F Rekstraraðili hf. hefur samþykkt að sjóðir í rekstri þess skuli leitast við að fjárfesta með ábyrgum hætti og um leið beita áhrifum sínum til að útgefendur þeirra fjármálagerninga sem sjóðir þess fjárfesta í, fylgi góðum stjórnarháttum og séu ábyrg félagslega og umhverfislega.
Sjálfbær þróun og ábyrgar fjárfestingar
Sjálfbær þróun snýr að þremur meginstoðum þ.e. efnahagslegum, samfélagslegum og umhverfislegum þar sem gerð er krafa um jafnvægi milli stoðanna. Ábyrgar fjárfestingar eru mikilvægur hluti í sjálfbærri þróun þar sem þær fela í sér að við fjárfestingarákvarðanir er ekki eingöngu tekið mið af fjárhagslegum þáttum heldur sé einnig horft til umhverfisþátta, félagsþátta og stjórnarhátta þ.e. UFS (e. ESG). Við fjárfestingarákvarðanir er metið sem svo að fjárhagsleg markmið og ábyrg markmið séu samræmanleg og stuðli að bættum hag fjárfesta.
Stefna AFR um ábyrgar fjárfestingar byggir á samfélagssáttmála Sameinuðu þjóðanna (e. UN Global Compact), Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna (e. UN Sustainable Development Goals) og alþjóðlegum meginreglum um ábyrgar fjárfestingar (e. United Nations Principles for Responsible Investments - UNPRI).
- UN Global Compact sáttmálinn sem gerður var árið 2000 af Sameinuðu þjóðunum er settur fram sem tíu grundvallarviðmið skipt í mannréttindi, vinnumarkað, umhverfi og aðgerðir gegn spillingu.
- Meginreglur um ábyrgar fjárfestingar eru settar fram af samtökum um ábyrgar fjárfestingar sem kallast UN Principles for Responsible Investments sem er alþjóðlegt samstarf stofnanafjárfesta sem starfar í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar.
- Sameinuðu þjóðirnar settu fram árið 2015 Heimsmarkmið (e. Sustainable Development Goals) og hafa öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna innleitt markmiðin, þar á meðal Ísland. Markmiðin eru ákall um aðgerðir sem bæta lífsskilyrði á jörðinni. Lesa má um markmiðin hér .
Tilgangur stefnu
Tilgangur stefnu þessarar er að skýra verklag og setja fram viðmið AFR við ábyrgar fjárfestingar. Leitast er við að hafa áhrif á stjórnendur fyrirtækja, draga úr áhættu og minnka tapsáhættu af fjárfestingum með beitingu stefnu þessarar. AFR telur að fyrirtæki sem starfa í sátt við haghafa sína, eru samfélagslega ábyrg og hafa sett sér og fylgja stefnu um sjálfbæra þróun munu vegna betur og skila betri arðsemi til lengri tíma litið en samkeppnisaðilar sem gera það ekki. Auk þess að áhætta tengd rekstri þeirra félaga verði minni.
Markmið og áherslur
Sjóðir í rekstri AFR hafa fyrirfram ákveðna fjárfestingastefnu og fjárfestingamarkmið um eignasafn sem sjóðstjóri skal fylgja. Auk þess skal sjóðstjóri leitast við að hámarka ávöxtun viðkomandi sjóðs að teknu tilliti til áhættu.
Til þess að ná markmiðum um ábyrgar fjárfestingar munu starfsmenn AFR horfa til og leitast við að fylgja sex meginreglum UN PRI um ábyrgar fjárfestingar:
- Við munum taka mið af UFS við greiningu fjárfestingarkosta og við ákvörðunartöku.
- Við ætlum að vera virkur eigandi sem tekur tillit til UFS bæði í eigendastefnum og í verki.
- Við munum kalla eftir viðeigandi upplýsingagjöf um UFS frá aðilum sem við fjárfestum í.
- Við munum beita okkur fyrir viðurkenningu á og innleiðingu þessara meginreglna í fjárfestingastarfsemi.
- Við munum vinna saman að því að efla árangur við innleiðingu meginreglnanna.
- Við skilum skýrslum um starfsemi okkar og upplýsum um árangur við innleiðingu meginreglnanna.
Aðferðafræði og framkvæmd
AFR og starfsmenn þess eru meðvituð um að fjárfestar eru í auknum mæli farnir að setja sér siðferðisleg viðmið í fjárfestingum og hafa væntingar til að aðilar sem stýra eignum í þeirra umboði horfi til UFS þátta við fjárfestinga- og lánaákvarðanir. AFR hefur mótað útilokunarlista sem inniheldur þá eignaflokka/þá atvinnugeira sem ekki er fjárfest í. AFR hefur einnig mótað ferli við innra mat á UFS þáttum útgefenda þar sem stuðst er við spurningarlista, sem mótaður er að starfsmönnum AFR, sem og önnur viðeigandi gögn.
Við þróun á aðferðafræði AFR við ábyrgar fjárfestingar voru m.a. UFS leiðbeiningar Nasdaq , útgefnar í febrúar 2020, hafðar til hliðsjónar og má sjá hér í töflu.
Aðferðarfræði sjóða AFR má skipta í þrennt:
- Fjárfestingaferli
- Fjárfestingar sjóðsins skulu fylgja lögum, reglum og starfsreglum sjóðsins eins og þar er kveðið á um.
- Útgefendur fjármálagerninga mega ekki vera á útilokunarlista skv. stefnu AFR.
- Könnun á UFS þáttum hjá útgefendum verðbréfa sjóðsins
- Gert er innra mat á UFS þáttum útgefanda og stuðst við fyrirliggjandi og opinber gögn ásamt svörum við spurningalista, ef upplýsingar er ekki að finna opinberlega.
- Skýrslugerð
- Samhliða yfirliti um eignasafni og ávöxtun er fjárfestum gerð grein fyrir stöðu á UFS þáttum á eignasafni sjóðsins og innra mati.
Endanleg ákvörðun um fjárfestingu ræðst af því hvort könnun á UFS þáttum útgefenda samkvæmt mati sjóðstjóri bendi til þess að fjárfestingu fylgi of mikil áhætta fyrir hagaðila, þ.e. sjóðinn, eigendur hans, AFR og aðra. Leitast verður eftir því að útgefendur taki upp ferla og stefnur sem uppfylla kröfur um samfélagslega ábyrgð og verður UFS matið endurskoðað á meðan fjárfestingu stendur.
Aðferðafræði og framkvæmd ábyrgra fjárfestinga er í sífelldri þróun innan AFR og mun AFR endurskoða og uppfæra stefnu þessa eftir því sem talin er ástæða til.
Útilokun fjárfestinga
Við fjárfestingaferli og ferli lánveitinga útilokar AFR að fjárfesta í atvinnugeirum sem stangast á við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Á það aðallega við um erlenda útgefendur, en varðar innlenda útgefendur einnig. Fjárfestingar í fjármálagerningum útgefnum af fyrirtækjum sem ekki fylgja alþjóðlegum samningum eru því útilokaðar, svo sem
- fyrirtækjum sem framleiða hergögn, svo sem vopn og sprengjur
- fyrirtækjum sem brjóta gegn mannréttindum eða stunda barnaþrælkun
- fyrirtækjum sem framleiða vörur sem geta valdið heilsufarslegum skaða (tóbak, kannabis, o.s.frv.)
- fyrirtækjum sem eru óábyrg gagnvart umhverfinu, þ.e.a.s. eru í starfsemi sem hefur í för með sér óafturkræf áhrif á vistkerfi okkar, hvort sem er á landi eða sjó, og dregur mögulega úr líffræðilegri fjölbreytni eða stuðlar að ósjálfbærri nýtingu auðlinda.
Eigendastefna
Markmið AFR með stefnu um ábyrgar fjárfestingar er að stuðla að umhverfisvernd, betri félagsaðstæðum og bættum stjórnarháttum. AFR mun hvetja stjórnendur fyrirtækja til að innleiða þessa þætti í starfsemi sína og til að gera enn betur í þeim málum sem hafin eru.
Upplýsingagjöf vegna áhættu tengdri sjálfbærni
Gagnsæi í áhættustefnu um sjálfbærni (3. gr. SFDR)
Á grundvelli laga nr. 25/2023, um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar, hefur reglugerð ESB nr. 2019/2088, um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu, (SFDR) verið innleidd.
Samkvæmt 3. gr. SFDR skulu aðilar á fjármálamarkaði birta á heimasíðu upplýsingar um stefnur sínar um hvernig áhætta tengd sjálfbærni er felld inn í fjárfestingarákvörðunartökuferli þeirra. Þá skulu fjármálaráðgjafar birta á heimasíðu upplýsingar um stefnur sínar um hvernig áhætta tengd sjálfbærni er felld inn í fjárfestingarráðgjöf þeirra. AFR fellur undir skilgreiningu á aðila á fjármálamarkaði, en sinnir ekki fjárfestingarráðgjöf og telst því ekki vera fjármálaráðgjafi með vísan til framangreinds.
Áhætta tengd sjálfbærni er „atburður eða ástand á sviði umhverfismála, félagsmála eða stjórnarhátta sem gæti, ef hann gerist, haft raunveruleg eða hugsanleg veruleg neikvæð áhrif á virði fjárfestingarinnar“ samanber 22. tölul. 2. gr. SFDR.
Eins og fram kemur að ofan þá hefur AFR sett sér stefnu er tekur á ábyrgum fjárfestingum og er efni stefnunnar í textanum að framan.
Að öðru leyti en að framan er lýst þá hefur formlegt samræmt mat á UFS þáttum við mat á fjárfestingarkostum hefur ekki verið innleitt að fullu, en aftur á móti er tekið tillit til þeirra upplýsinga um sjálfbærniþætti sem liggja fyrir við almennt mat fjárfestingarkosta.
AFR hefur og mun halda áfram að vinna að innleiðingu SFDR í starfsemi félagsins.
Gagnsæi í tengslum við neikvæð áhrif á sjálfbærni á einingastigi (e. Principal Adverse Impact on sustainability factors, PAI) (4. gr. SFDR)
Sjálfbærniþættir eru „umhverfis-, félags- og starfsmannatengd mál, virðing fyrir mannréttindum og mál sem varða baráttuna gegn spillingu og mútum“ samanber 24. tölul. 2. gr. SFDR. Með helstu neikvæðu áhrifum er almennt átt við þau neikvæðu áhrif sem fjárfestingarákvörðun getur haft á ofangreinda þætti.
Fjárfestingar á fjármálamarkaði eru almennt í fjármálagerningum útgefnum af fyrirtækjum, opinberum aðilum og öðrum útgefendum. Starfsemi þessara útgefenda hefur óhjákvæmilega áhrif á sjálfbærni sem varða fjárhagslega þætti, umhverfisþætti og félagslega þætti (UFS). Áhrifin geta verið neikvæð og/eða jákvæð.
Samkvæmt 4. gr. SFDR skulu aðilar á fjármálamarkaði birta og uppfæra á heimasíðu upplýsingar um hvort þeir taka tillit til helstu neikvæðu áhrifa fjárfestingarákvarðana á sjálfbærniþætti, yfirlýsingu um stefnur um áreiðanleikakönnun að því er varðar þessi áhrif, að teknu tilliti til stærðar þeirra, eðlis og umfangs starfsemi þeirra og þeirra gerða fjármálaafurða sem þeir veita. Ef þeir taka ekki tillit til neikvæðra áhrifa fjárfestingarákvarðana á sjálfbærniþætti skal einnig upplýsa um það og tilgreina skýrar ástæður fyrir því hvers vegna þeir gera það ekki, þ.m.t., ef við á, upplýsingar um hvort og hvenær þeir hyggjast taka tillit til slíkra neikvæðra áhrifa. Aðilum sem fara yfir viðmið um 500 starfsmenn eða móðurfélag stórrar samstæðu sem fer yfir viðmið um 500 starfsmenn er skylt að birta framangreindar upplýsingar. AFR fellur ekki undir þessi viðmið, hvorki sem aðili né móðurfélag í samstæðu.
Að öðru leyti en kemur fram að framan, þá tekur AFR sem stendur ekki tillit til neikvæðra áhrifa fjárfestingarákvarðana á sjálfbærniþætti. Athugun á neikvæðum áhrifum fjárfestingarákvarðana á sjálfbærniþætti krefst endurnýjunar á gildandi innri ferlum, aukinnar gagnasöfnunar og mælinga ásamt ófjárhagslegum upplýsingum félaga og útgefenda sem fjárfest er í.
Þessir ferlar hafa enn ekki verið þróaðir og telur AFR sig ekki geta framkvæmt hæfilegt mat á neikvæðum áhrifum fjárfestinga á sjálfbærniþætti, umfram það sem að framan greinir, á meðan ófjárhagslegar upplýsingar eru enn af skornum skammti og gæði þeirra oft á tíðum ófullnægjandi. Er unnið að því að meta hvernig standa eigi að söfnun og vöktun gagna til að meta neikvæð áhrif fjárfestinga á sjálfbærniþætti eftir stærð og tegund útgefenda og mismunandi fjármálagerningum, fjármálaafurðum og fjárfestingarstefnum.
Fylgst verður með áframhaldandi þróun á regluverki tengt sjálfbærni. Samhliða því mun AFR leitast við að þróa ferla þegar fram líða stundir, sem gera félaginu kleift að safna og mæla helstu neikvæðu áhrif sjálfbærniþætti eftir því sem aðgengi að gögnum eykst og upplýsingagjöf batnar.
Gagnsæi starfskjarastefnu í tengslum við hvernig áhætta tengd sjálfbærni er felld inn (5. gr. SFDR)
Samkvæmt 5. gr. SFDR skulu aðilar á fjármálamarkaði og fjármálaráðgjafar hafa upplýsingar í starfskjarastefnu sinni um hvernig sú stefna samræmist innfellingu áhættu tengda sjálfbærni og birta þær upplýsingar á heimasíðu sinni.
Í starfskjarastefnu AFR kemur fram að hún miðar að því að AFR sé samkeppnishæft og eftirsóknarverður kostur fyrir hæft og framúrskarandi starfsfólk, og þar með tryggja samkeppnishæfni félagsins, framþróun og viðunandi arðsemi. Starfskjarastefnunni er ætlað að stuðla að heilbrigðum rekstri til lengri tíma litið og ekki hvetja til óeðlilegrar áhættusækni. Áhersla er lögð á að starfskjör séu samkeppnishæf en þó ekki leiðandi og við ákvörðun um starfskjör skuli horft til ábyrgðar og starfsreynslu. Í starfskjarastefnu felast jafnframt markmið um að traust ríki um stjórn og starfsemi AFR, að félagið fylgi góðum stjórnarháttum og sýni af sér samfélagslega ábyrgð. Markmiðið er jafnframt að hugað sé að orðspori og trúverðugleika AFR, og að starfað sé í samræmi við þau viðmið, gildi og viðskiptasiðferði sem eðlilegt er að gildi um rekstraraðila sérhæfðra sjóða á Íslandi.
Í gildandi starfskjarastefnu er ekki vikið að því hvernig stefnan tekur á áhættu tengdri sjálfbærni. Það er mat AFR að framangreind ákvæði og önnur ákvæði stefnunnar styðji við hóflega áhættutöku og þá menningu að horft sé til sjálfbærniáhættu í starfsemi AFR. Hins vegar er miðað við að ákvæði með beinni tilvísun til sjálfbærni verði sett inn í starfskjarastefnu AFR á næsta aðalfundi félagsins vorið 2025.
Gildandi starfskjarastefna AFR er aðgengileg hér.