Sérhæfðir sjóðir
Valdimar Ármann
Fjárfestingastjóri
Valdimar Ármann hefur langa reynslu af fjármálamörkuðum og hóf störf árið 1999 hjá Búnaðarbankanum Verðbréf og starfaði hjá ABN AMRO Bank árin 2003-2009, fyrst í London í verðbólgutengdum afurðum en síðan í New York sem forstöðumaður verðbólgutengdra afurða í Bandaríkjunum. Valdimar starfaði síðan hjá GAMMA Capital Management frá árinu 2009 fyrst sem sjóðsstjóri og framkvæmdastjóri sjóða og síðar 2017-2019 sem forstjóri félagsins. Valdimar starfaði hjá Arctica Finance í markaðsviðskiptum og sem forstöðumaður eignastýringar frá árinu 2020 til 2023.

Valdimar er hagfræðingur frá Háskóla Íslands, með M.Sc. gráðu í fjármálaverkfræði frá ICMA Centre, University of Reading í Bretlandi og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Hann hefur ritað fjölda greina og tekið þátt í skýrslugerð og ráðstefnum ásamt því að hafa verið aðjúnkt í Háskóla Íslands 2014-2018 og kenndi þar námskeiðið Skuldabréf í Mastersnámi.
Vanesa Hoti
Aðstoðar sjóðstjóri A/F STILLU slhf.
Vanesa Hoti er aðstoðar sjóðstjóri A/F Stillu slhf. Vanesa hóf störf árið 2021 í Eignastýringu Arctica Finance eftir að hafa útskrifast með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði með áherslu á fjármál, frá Háskóla Íslands. Vanesa hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.