Um A/F Rekstraraðila

Starfsmenn

Friðrik Magnússon
Framkvæmdastjóri
Friðrik Magnússon er framkvæmdastjóri A/F Rekstraraðila hf. Friðrik var forstöðumaður Eignastýringar Arctica Finance frá 2010 til 2020. Friðrik hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 1994 sem framkvæmdastjóri Verðbréfasjóða Íslandsbanka, deildarstjóri og sjóðstjóri í Eignastýringu Íslandsbanka, sérfræðingur í Einkabankaþjónustu Íslandsbanka og Glitnis banka og sem sérfræðingur í eignastýringu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Friðrik er viðskiptafræðingur af fjármálasviði Háskóla Íslands (1994), með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík (2010) og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Valdimar Ármann
Fjárfestingastjóri
Valdimar Ármann hefur langa reynslu af fjármálamörkuðum og hóf störf árið 1999 hjá Búnaðarbankanum Verðbréf og starfaði hjá ABN AMRO Bank árin 2003-2009, fyrst í London í verðbólgutengdum afurðum en síðan í New York sem forstöðumaður verðbólgutengdra afurða í Bandaríkjunum. Valdimar starfaði síðan hjá GAMMA Capital Management frá árinu 2009 fyrst sem sjóðsstjóri og framkvæmdastjóri sjóða og síðar 2017-2019 sem forstjóri félagsins. Valdimar starfaði hjá Arctica Finance í markaðsviðskiptum og sem forstöðumaður eignastýringar frá árinu 2020 til 2023.

Valdimar er hagfræðingur frá Háskóla Íslands, með M.Sc. gráðu í fjármálaverkfræði frá ICMA Centre, University of Reading í Bretlandi og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Hann hefur ritað fjölda greina og tekið þátt í skýrslugerð og ráðstefnum ásamt því að hafa verið aðjúnkt í Háskóla Íslands 2014-2018 og kenndi þar námskeiðið Skuldabréf í Mastersnámi.
Vanesa Hoti
Sjóðstjóri
Vanesa Hoti er sjóðstjóri hjá A/F Rekstraraðila hf. Vanesa hóf störf árið 2021 í Eignastýringu Arctica Finance eftir að hafa útskrifast með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði með áherslu á fjármál, frá Háskóla Íslands. Vanesa hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Þórir Örn Ingólfsson
Áhættustjóri
Þórir Örn Ingólfsson er áhættustjóri A/F Rekstraraðila hf. og þeirra sjóða sem eru í rekstri. Þórir starfaði sem fjármálastjóri lyfjafyrirtækisins Williams & Halls frá 2020-2023 og sem framkvæmdastjóri Calco Consulting frá 2010. Þórir var Yfirmaður áhættustýringar Landsbankans hf. árin 2008-2010 og Forstöðumaður áhættustýringar hjá Landsbanka Íslands hf. á árunum 1998-2008. Þórir lauk C.Sc. í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1995 og M.Sc. í véla- og iðnaðarverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet árið 1997 og hann hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.