Starfsmenn

Friðrik Magnússon er framkvæmdastjóri A/F Rekstraraðila hf. Friðrik var forstöðumaður Eignastýringar Arctica Finance frá 2010 til 2020. Friðrik hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 1994 sem framkvæmdastjóri Verðbréfasjóða Íslandsbanka, deildarstjóri og sjóðstjóri í Eignastýringu Íslandsbanka, sérfræðingur í Einkabankaþjónustu Íslandsbanka og Glitnis banka og sem sérfræðingur í eignastýringu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Friðrik er viðskiptafræðingur af fjármálasviði Háskóla Íslands (1994), með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík (2010) og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Vanesa Hoti er sjóðstjóri hjá A/F Rekstraraðila hf. Vanesa hóf störf árið 2021 í Eignastýringu Arctica Finance eftir að hafa útskrifast með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði með áherslu á fjármál, frá Háskóla Íslands. Vanesa hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Þórir Örn Ingólfsson er áhættustjóri A/F Rekstraraðila hf. og þeirra sjóða sem eru í rekstri. Þórir starfaði sem fjármálastjóri lyfjafyrirtækisins Williams & Halls frá 2020-2023 og sem framkvæmdastjóri Calco Consulting frá 2010. Þórir var Yfirmaður áhættustýringar Landsbankans hf. árin 2008-2010 og Forstöðumaður áhættustýringar hjá Landsbanka Íslands hf. á árunum 1998-2008. Þórir lauk C.Sc. í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1995 og M.Sc. í véla- og iðnaðarverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet árið 1997 og hann hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.